Yfirlit
- Heim
- Afleidingarnar
- Hverjum er um að kenna?
- Myndir
- World-Nuclear
- Chernobyl.com
- Chernobyl.co.uk
- usc.edu
- nea.fr
Ãhugaverðar sÃður
Atburðarásin í grófum dráttum
Þegar slysið átti sér stað var verið framkvæma tilraun sem átti að skera úr um hvort kjarnaofninn gæti sett í gang neyðarkerfi ef straumurinn til vatnsdælanna sem dæla kælivatni um kjarnaofninn myndi stöðvast. Athuga átti hvort mögulegt væri að nýta afgangshreyfiorku hverfirafalsins í lausagangi til að halda vatnsdælunum stöðugum ef allt yrði rafmagnslaust. Tíminn sem það tekur fyrir dísilvélarnar, sem eiga að sjá um að dælingu kælivatnsins um ofninn, að ná fullu afli er allt of mikill og ef hægt væri að nota afgangshreyfiorku hverflanna til að halda dælunum gangandi á meðan þessum styrk er náð myndi það auka öryggi kjarnaofnanna töluvert.
En brot á nánast öllum hugsanlegum öryggisreglum í verinu ollu því að ekki fór allt sem skyldi þennan dag.
Morguninn 25. apríl: Varmaorkuframleiðsla kjarnaofnsins var lækkuð um helming, eða niður í 1600 megavött. Neyðarkælikerfið var gert óvirkt því það tekur til sín orku sem gat haft áhrif á niðurstöður prófunarinnar. Fyrsta brot á öryggisreglum! Tilrauninni varð síðan að fresta vegna mikillar raforkunotkunar en neyðarkælikerfið var ekki tengt aftur sem ber vott um mikið kæruleysi. Annað brot á öryggisreglum!
23:10: Tilraunin hafin að nýju. Kjarnaofninn var stilltur á lága orkuframleiðslu, en starfsmanni mistókst að forrita tölvukerfið þannig að varmaorkuframleiðslan héldist í 700 til 1000 megavöttum eins og öryggisreglur gera ráð fyrir. Þriðja brot á öryggisreglum!
01:00. 26. apríl: Varmaorkuframleiðslan féll niður á mjög hættulegt stig, eða 30 MW. Til að auka framleiðsluna voru því næstum allar kolefnisstengurnar, sem hægja á virkninni færðar ofar, einungis 8 stengur urðu eftir inni í kjarnaofninum þó öryggisreglur geri ráð fyrir að þær séu að minnsta kosti 30. Orkan hækkaði nú aftur og náði að haldast í jafnvægi í 200 megavöttum. Svona kjarnaofna er stranglega bannað að gangsetja á ný við svo lága afkastagetu. Fjórða og fimmta brot á öryggisreglum! Til að tryggja næga kælingu voru allar 8 kælileiðslur ofnsins settar í gang. Sambland lítillar orku og mikillar kælingar hafði aftur í för með sér gríðarmikla handvirka stjórnun svo starfsmennirnir afréðu að slökkva á næstum öllum neyðarlokunarmerkjum. Sjötta brot á öryggisreglum!
01:22: Tölvan gefur til kynna að virkni í ofninum sé orðin mikil og greinilegt er að neyðarhemlun er nauðsynleg, en starfsmennirnir voru undir álagi og vildu klára prófunina. Þeir slökktu því á síðasta neyðarmerkinu, um það bil sem átti að fara að slökkva á kjarnaofninum. Sjöunda brot á öryggisreglum!
1:23:04: Langþráð tilraunin hófst og orkan tók að rísa. Hverfirafallinn var aftengdur en við þær kringumstæður ætti ofninn að öllu jöfnu að stöðvast sjálfkrafa, en aftur á móti hafði verið slökkt á kerfinu sem átti að sjá um það. Rafmagnsfræðingarnir sem sáu um tilraunina vildu nefnilega halda ofninum gangandi ef endurtaka þyrfti tilraunina. Áttunda brot á öryggisreglum! Við svo lága orku getur lítil breyting komið af stað enn stærri breytingu. Vatn gufar upp og drekkur þannig í sig færri nifteindir.
01:23:21: Vítahringurinn var hafinn. Starfsmenn hefðu þó getað slökkt á ofninum á innan við 17 sekúndum og komið í veg fyrir slysið. Níunda brot á öryggisreglum!
01:23:40: Starfmannastjórinn tekur loks við sér og reynir að koma í veg fyrir stórslys með því að setja kolefnisstengurnar niður, en það var um seinan. Stengurnar fóru niður með 40 cm hraða á sekúndu sem er allt of lítill hraði til að hægja nægilega mikið á nifteindaframleiðslunni. Virknin jókst því áfram og á næstu fjórum sekúndum fór orkan í rúmlega 100 sinnum það sem kjarnaofninn þolir. Úranið braust í gegnum klæðninguna og komst í samband við kælivatnið. Öflug gufusprenging kastaði lokinu, sem vegur 1000 tonn, af kjarnaofninum. Önnur sprenging eyðilagði kjarnann, lagði steypta bygginguna nánast í rúst og kastaði brennandi kolefnisplötum og eldsneyti um hana svo 30 eldar kviknuðu víðsvegar um bygginguna. Geislavirkt ryk þyrlaðist meira en tvo kílómetra upp í loftið í ógurlega heitu gasskýi.
01:30: Slökkviliðsmenn mæta á staðinn og berjast við eldinn nánast alla nóttina.
05:00: Allir eldar hafa verið slökktir. Margir slökkviliðsmannanna strax farnir að sýna einkenni mikillar geislunar.